FRÉTTIR


 
Forsíða
Ferðalög 
Lög
Saga
Stjórn
Eldri fréttir
Þjóðræknisþing
Tenglar
Fréttabréf
Snorraverkefnið
Snorri West 
Skráning í félagið
 
ENGLISH

 

Brynjolfur Sigurgeirson látinn

Fyrir framan barnaskólann á Hecla Island vorið 2003: Halldór Árnason, David Gislason, Binnie Sigurgeirson og Neil Bardal 

Brynjolfur (BINNIE) Helgi Sigurgeirson frá Mikley (Hecla Island) við Winnipegvatn andaðist 3. janúar sl. á Heilbrigðisstofnuninni í Gimli. Binnie Sigurgeirson, eins og hann var oftast nefndur, var 82 ára þegar hann lést. Útför hans fer fram frá Lútersku kirkjunni á Mikley mánudaginn 9. janúar nk.  

Binnie ólst upp og bjó allan sinn aldur á Mikley, en flestir íbúar þeirrar eyju voru af íslenskum uppruna. Hann gladdi margan Íslendinginn sem þangað ferðaðist með lifandi frásögnum af lífinu í Mikley. Þó svo að Binnie hafi verið orðinn 73 ára þegar hann fyrst kom til Íslands, þá talaði hann á kjarngóðri íslensku, þeirri sem hann var alinn upp við, en bjó til sína eigin útgáfu af seinni tíma nýyrðum.

Þjóðræknisfélag Íslendinga vottar Brynjólfi Helga Sigurgeirssyni virðingu sína og sendir ættingjum hans innilegar samúðarkveðjur.

Í heimsókn hjá Binnie vorið 2003: Binnie Sigurgeirson, David Gislason, Pétur Ásgeirsson, Halldór Árnason og Neil Bardal

*******

Forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Norður-Ameríku í heimsókn

Gail Einarson-McCleery, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Norður-Ameríku (INL of NA) dvaldi hér á Íslandi um jól og áramót. Á baksíðu Morgunblaðsins 6. janúar 2012  er viðtal við hana í tilefni heimsóknarinnar. Þar kemur fram að hún hafi notið þess að sækja tónleika, skoða mannlífið, fara á áramótabrennu og horfa á flugeldasýningar.

Gail er af íslenskum ættum, býr í Toronto. Eftir að hún hætti að vinna sneri hún sér að málefnum fólks af íslenskum ættum vestra hefur hún átt aukin samskipti við Íslendinga og m.a. tekið þátt í Snorra plúsverkefninu.

Fram kemur í viðtalinu við Gail að um áramótin hóf göngu sína nýtt félag innan INL og er það alfarið á netinu, „The Icelandic Online Club“ (inlofna.org/IOC/). Félagið á netinu er opið öllumsem áhuga hafa á íslenskum málefnum beggja vegna Atlantshafsála.

Sjá nánar

*******

 

Fjórða fréttabréf ársins er komið út. Þar má finna pistil nýs forseta ÞFÍ, Halldórs Árnasonar, grein um Snorra West verkefnið, viðtal við fyrrum þátttakanda í Snorraverkefnnu, samkeppni um nýtt heiti á félaginu og ýmislegt fleira.
Sjá fréttabréfið í heild sinni HÉR.


*******

Jólakveðja frá forseta ÞFÍ

Kæru félagsmenn Þjóðræknisfélags Íslendinga.

Ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar mínar bestu óskir um gleðileg jól og gott og farsælt nýtt ár.

Síðast liðið vor lét Almar Grímsson af starfi forseta Þjóðræknisfélagsins eftir að hafa gengt því starfi af miklum dugnaði og fórnfýsi í 9 ár. Félagið hefur eflst mjög undir hans stjórn og miklu skiptir að fá að njóta áfram hans leiðsagnar og krafta. Almari og konu hans Önnu Björku eru færðar þakkir fyrir ómetanlegt starf í þágu ÞFÍ.

Félagsmönnum Þjóðræknisfélagsins hefur fjölgað allnokkuð á árinu 2011 og er vonast til að enn fleiri gangi til liðs við félagið á árinu 2012. Samskipti Íslendinga við afkomendur Íslendinga í Vesturheimi fara stöðugt  vaxandi  og æ fleiri vináttubönd tengjast á milli landanna. Það er óvíða í heiminum sem slík þjóðrækni lifir jafngóðu lífi og hjá Vestur-Íslendingum í Norður Ameríku.

Það er sýnileg vakning í áhuga á Íslandi og íslenskri arfleifð meðal ungra afkomenda í Norður Ameríku og heimsóknir  ungs fólks af íslenskum ættum til Íslands hafa aukist mjög. Þau eru mjög stolt af því að tengjast landi og þjóð. Þjóðræknisfélagið hefur því metnað til að kynna Íslendingum enn betur þá menningarlegu arfleifð sem er að finna meðal Vestur-Íslendinga. Þá gefst ungum Íslendingum tækifæri næsta sumar til að taka þátt í Snorra-West verkefninu í fjögra vikna ferð og dvöl á slóðum Vestur-Íslendinga í Minnesota, Norður-Dakota í Bandaríkjunum og Manitoba í Kanada.

Ég átti þess kost að kynna Þjóðræknisfélagið í fylgd með Atla Ásmundssyni aðalræðismanni Íslands í Winnipeg á nokkrum stöðum. Á þessum samkomum flutti Atli afar áheyrilegt og stórfróðlegt erindi um kynni sín af Vestur-Íslendingum í Manitoba. Meðal annars fórum við ógleymanlega ferð til Vopnafjarðar en frá þeim stað sigldu um 3.000 manns til Vesturheims. Við stefnum á að heimsækja fleiri staði á næsta ári.

Á fyrstu mánuðum næsta árs mun félagið standa fyrir tveimur viðburðum. Bjarki Sveinbjörnsson forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands mun kynna tónlistarmenningu íslensku frumbyggjanna í Norður Ameríku. Hann ásamt Jóni Hrólfi Sigurjónssyni hafa um margra ára skeið unnið að söfnum afar merkilegra heimilda um kvæða- og tónlist Íslendinga sem fluttust vestur um haf.

Þá mun Elín Hirst blaðamaður segja frá tilurð heimildarmyndar sem hún gerði um ættmenni sín í Vesturheimi og sýna myndina í framhaldinu.

Ennfremur er gert ráð fyrir að boða til fundar á fyrstu mánuðum næsta árs þar sem félagsmönnum gefst tækifæri á að koma fram með hugmyndir og sjónarmið um stefnu og áherslur Þjóðræknisfélagsins á næstu árum.

Um væntanlega stafsemi Þjóðræknisfélagsins verður nánar fjallað í næsta Fréttabréfi ÞFÍ sem kemur út um miðjan febrúar 2012.

Loks væri gaman að heyra frá ykkur ef þið hafið hugmyndir um hvernig Þjóðræknisfélagið geti sinnt hlutverki sínu á næsta ári.

Með góðri kveðju,

Halldór Árnason, forseti ÞFÍ

*******

SAMKEPPNI UM NÝTT HEITI Á ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGINU

Stjórn ÞFÍ hefur samþykkt að efna til samkeppni um nýtt nafn á félaginu en heitið Þjóðræknisfélag Íslendinga þykir bæði strembið í framburði og mörgum torskilið. Við hvetjum þig félagsmaður góður að senda okkur hugmynd að nýju nafni, þannig að heitið Þjóðræknisfélag Íslendinga geti verið undirtitill hins nýja nafns. Æskilegt er að auðvelt verði að þýða hið nýja nafn yfir á ensku.

Skilafrestur á nýju nafni er til 1. febrúar 2012 og íframhaldinu fá félagsmenn tækifæri að kjósa um eitt nafn úr þremur möguleikum sem stjórn ÞFÍ velur úr innsendum tillögum. Tillögur að nýju nafni má senda til félagsins að Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík eða á netfangið astasol@snorri.is

*******

„Íslenskt“ jólakaffi rennur út í Vesturheimi.

Á baksíðu Morgunblaðsins laugardaginn 19. nóvember er greint frá því að áhugafólk um varðveislu íslenskrar menningararfleifðar í Vesturheimi selji  nú „íslenskt“ jólakaffi til styrktar verkefnum í grennd við Íslandsfljót á Nýja Íslandi.

Nelson Gerrard fræðimaður og talsmaður samtakanna Icelandic River Heritage Sites Inc. Segir að þegar sé búið að selja tæplega tvö tonn af kaffinu.

Samtökin voru stofnuð árið 2006 til þess að bjarga kirkjugarðinum í Nesi austan við Riverton í Manitoba frá því að hverfa í Íslendingafljót. Vitað er um 30 Íslendinga sem dóu úr stórubólunni veturinn 1866-77 og voru jarðsettir þar. Síðan hefur verkefnum fjölgað og fleiri gengið til liðs við samtökin. Samtökin sjá um Víðimýri, þar sem Guttormur J. Guttormsson skáld bjó alla tíð og vinnur við að laga og endurnýja Engimýri, hús sem Tómas Ágúst Jónasson byggði árið 1900. Ríkisstjórn Kanada hefur opinberlega skráð Sigtrygg Jónasson „föður“ Nýja Íslands, sem einn af sögufrægum mönnum þjóðarinnar og samtökin eru með í undirbúningi gerð um tveggja metra hárrar styttu af honum. Kaffisalan nú er til styrktar öllum þessum verkefnum.

Nánari upplýsingar er að finna í fyrrnefndri grein Steinþórs Guðbjartssonar, blaðamanns, í Morgunblaðinu.

*******

Snorri Plús þátttakendur í skýjunum með dvölina

 Í síðustu viku lauk dvöl sjö þátttakanda Snorra-plús verkefnisins með útskriftarathöfn í Bláa lóninu en þeir höfðu dvalið hér á landi í tvær vikur. Verkefnið hófst á móttöku á skrifstofu Norræna félagsins þar sem aðstandendum verkefnisins og þátttakendum gafst tækifæri til að hitta ættingja sína. Allir tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni, menningardagskrá var í Þjóðmenningarhúsinu, farið var í Viðey og tækifæri gafst til að hitta starfsfélaga í starfsstétt hvers og eins þátttakanda. Þar má nefna VÍS, Innheimtustofnun sveitarfélaga og Arkitektastofan Eitt A. Eftir dvölina í Reykjavík var haldið á Snæfellsnesið og norðurlandinu gerð góð skil áður en forseti Íslands bauð til kaffiboðs á Bessastöðum. Stoppað var á bóndabæjum forfeðra og -mæðra þátttakenda þar sem því var komið við. Hópurinn var afar hress og var mikið hlegið en jafnframt féllu mörg gleðitár við ,,endur"fundi ættingja þeirra. Margir eru með áform um að snúa aftur strax á næsta ári.

Þátttakendur tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og hljóp einn fullt maraþon

 

Ferð um Breiðafjörð sem vakti mikla lukku

 

*******

Kynningarfundur á Vopnafirði

Fyrirhugaðir eru á næstu mánuðum kynningarfundir á Þjóðræknisfélagi Íslendinga víðsvegar um land. Er þetta liður í að fá fleira fólk til liðs við félagið þannig að það geti betur gengt hlutverki sínu við að efla tengsl við afkomendur íslenskra innflytjenda í Norður-Ameríku.

Þjóðræknisfélagið og utanríkisráðuneytið verða með kynningarfund í Kaupangi  á Vopnafirði laugardaginn 3. september nk. kl. 14. Halldór Árnason forseti ÞFÍ mun kynna starfsemi ÞFÍ og Atli Ásmundsson aðalræðismaður Íslands í Winnipeg mun greina frá kynnum sínum af afkomendum Íslendinga í Kanada. Að auki verður boðið upp á menningaratriði og kaffi og meðlæti. Félagsmenn ÞFÍ eru hvattir til að mæta og einnig til að benda ættingjum og vinum á þessa fundi og mikilvægi þess að vera liðsmaður ÞFÍ. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins á Vopnafirði er að finna hér.

*******

Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga á Hofsósi

Þjóðræknisþingið á Hofsósi var haldið sunnudaginn 28. ágúst sl. og sóttu það um 65-70 manns. Þingið heppnaðist í alla staði mjög vel en þingforseti og skipurleggjandi þess var Helgi Ágústsson fv. sendiherra. Halldór Árnason forseti ÞFÍ setti þingið að loknum harmónikkuleik Jóns Þorsteins frá Mýrarkoti. Alan Bones sendiherra Kanada, Eric Green varasendiherra Bandaríkjanna, Gail Einarson-McCleery forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi og Valgeir Þorvaldsson framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins flutt ávörp og kveðjur.

Pam Olafson-Furstenau frá Norður-Dakóta flutti í máli og myndum erindi sem hún nefndi “The love of Iceland in America” og Laurie Bertam frá Toronto flutti erindi sem hún nefndi “Aboriginal Icelandic Research”.

Kór Dalvíkurkirkju undir stjórn Hlínar Torfadóttur setti góðan svip á þingið með song sínum sem var forkunnarlega vel tekið. Kórinn fór í söngferð til Norður Dakóta og Manitóba í júlí sl.

Þjóðræknisfélagið bauð þinggestum upp á kaffiveitingar í hléi. Meðal gesta á Þjóðræknisþinginu voru þátttakendur í Snorra Plús verkefninu.

 

 

 

*******

Snorra Plús Hóp 2011

 

 *******

Snorra-hópurinn í heimsókn á Bessastöðum þann 21. júlí sl. ásamt Halldóri Árnasyni, formanni Snorrasjóðs, og Ástu Sól Kristjánsdóttur verkefnastjóra.

 

Snorrar sækja heim land forfeðranna

Þátttakendur Snorraverkefnisins fóru af landi brott í lok júlímánaðar eftir 6 vikna dvöl. Allir dvöldu hjá ættingjum sínum í þrjár vikur og tóku þátt í starfsþjálfun á eftirtöldum stöðum: Fáskrúðsfirði, Akureyri, Dalvík, Vík, Reykjavík, Kópavogi, Grindavík, Hvammstanga, Hörgárdal, Akranesi og Vestmannaeyjum. Þetta var í fyrsta sinn sem fleiri komu frá Bandaríkjunum en Kanada og kom einn þátttakandinn alla leið frá Hawaii. Dvölin endaði í Bláa lóninu með útskriftarathöfn þar sem allir skiluðu lokaverkefni og fengu útskriftargjöf frá Víkurprjón.
Hópurinn náði einstaklega vel saman og eru margir þegar búin að skipuleggja aðra ferð og aðrir hyggja á nám á Íslandi í framtíðinni.

 

 *******

Hátíðahöld vegna 17. júní 2011 í Vesturheimi

Atli Ásmundsson aðalræðismaður og frú Þrúður með fjallkonu Manitoba Gudrun Viola Bjarnason Hilton

 

Arnar Jónsson og Hilmar Guðjónsson hlutu afar góðar viðtökur í snjöllum einþáttungi Sveins Einarssonar um Jón Sigurðsson. verkið var flutt í Mountain, Winnipeg og Markerville.

Sveinn Einarsson og Almar heilsuðu upp á Kristinu Geir Hall sem átti 102 ára afmæli 5. júní s.l.

Svavar Gestsson flutti hátíðarræðu við styttu Jóns Sigurðssonar.

Ræðan

Í boði landstjóra Manitoba Philip S. Lee og frú Anitu 17. júní. Almar Grímsson þakkar fyrir hönd gesta frá Íslandi.

Kór Bústaðakirkju undir stjórn Jónasar Þóris heillaði tilheyrendur í Mountain og Winnipeg

Sr. Pálmi Matthíasson messaði í lútersku kirkjunni í Arborg 18.6.

Frá heimsókn til Rosalind og Einar Vigfusson að Drangey. Jónas Þórir og Rosalind létu gamminn geisa.

*******

David Gislason heiðursgestur hátíðarhalda á Hrafnseyri

David Gislason flytur kveðju frá Vestur-Íslendingum við hátíðarhöldin á Hrafnseyri

Á Hrafnseyri við Arnarfjörð var þess minnst þann 17. júní sl. með veglegri hátíð að liðin eru 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta að viðstöddum fyrirmönnum þjóðarinnar og miklum fjölda gesta. Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir setti hátíðina og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson hélt hátíðarræðu. Sérstakur gestur Hrafnseyrarnefndar á hátíðarhöldunum var David Gislason bóndi á Svaðastöðum í Arborg, Manitoba, sem flutti kveðju frá Vestur-Íslendingum. Hann afhenti formanni Hrafnseyrarnefndar Eiríki Finni Greipssyni ljósmynd af styttu Jóns Sigurðssonar sem stendur í garði við þinghúsið í Winnipeg.

 

Nótnaheftið með Minni Jóns Sigurðssonar

 

Jón Hlöðver semur lag í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar

Jón Hlöðver Áskelsson félagi í Þjóðræknisfélagi Íslendinga hefur samið lag við ljóð Matthíasar Jochumssonar, Minni Jóns Sigurðssonar, í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og var lagið flutt í Lystigarðinum þann 17. júní. Hið íslenska bókmenntafélag gefur af þessu tilefni út nótnahefti með ljóðinu, en þar er það einnig birt í enskri þýðingu sem David Gislason í Kanada gerði fyrir orð Jóns Hlöðvers. Á hátíðardagskránni í Lystigarðinum á Akureyri afhenti höfundurinn formlega stjórn Akureyrarstofu lagið.  Þann sama dag var eintak af Minni Jóns Sigurðssonar afhent við hátíðardagskrá Íslendingadagsins 17. júní í Winnipeg í Kanada.

Að sögn Jóns Hlöðvers er Minni Jóns Sigurðssonar heiti ljóðs Matthíasar Jochumssonar, eins og það er fyrst prentað í Reykjavík 1877. Þar er Jón kallaður forseti Íslendinga, en forsetaheitið fékk Jón sem forseti Hins íslenska bókmenntafélags, er hann var löngum í forsvari fyrir. Í Ljóðmælum Matthíasar, 1884, er fyrirsögn kvæðisins: Til Jóns Sigurðssonar við síðustu burtför hans frá Íslandi. Þar er bætt við fjórða erindinu. Að mati Sigurðar Norðdal (Hirðskáld JS, sem gefið var út af Almenna bókafélaginu 1961, og SN tók saman) bar þetta stutta kvæði að skáldskapargildi af öllu, sem kveðið var fyrir minni Jóns. Þegar Jón Hlöðver ákvað að velja ljóð fyrir sinn nýja söng varð því leiðsögn Sigurðar Norðdal látin ráða för og er lagið hér prentað til flutnings fyrir blandaðan kór, háa einsöngsrödd og píanó eða orgel. Af þeim 4 erindum, sem birtust í fyrrgreindum ljóðmælum felldi Jón Hlöðver niður 4. erindið og ákvað að nota heitið, Minni Jóns Sigurðssonar.

*******

BBC fjallar um Íslendingabæinn Gimli.

BBC fjallar um bæinn Gimli á Nýja Íslandi í Kanada. Segir að fólk frá Íslandi sé enn að koma þangað til að leita að lífsviðurværi. Rætt er við Lorna Tergesen og nokkra Íslendinga sem nýlega hafa flutt til Gimli.

Myndskeiðið sem hefur fengið mikið áhorf á vefnum má sjá hér.

*******

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar ÞFÍ

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Þjóðræknisfélags íslendinga var haldinn mánudaginn 6. júní 2011 í Þjóðmenningarhúsinu. Á fundinum skiptu stjórnarmenn með sér verkum, kosið var í framkvæmdaráð ÞFÍ og fjallað um einstök málefni félagsins eins og Snorraverkefnið og fyrirhugað Þjóðræknisþing á Hofsósi 28. ágúst nk. Fundargerðina má sjá hér.

*******

Veisluhöld í Winnipeg og fjölbreytt dagskrá í haust

Íslenskudeild Manitobaháskóla í Winnipeg í Kanada hefur verið starfrækt í 60 ár og af því tilefni verður blásið til veislu sem hefst með ljósmyndasýningu Jóhanns Páls Valdimarssonar, útgáfustjóra JPV-útgáfu, í Safni íslenskrar menningararfleifðar á Gimli (New Iceland Heritage Museum).

Meira á mbl.is

*******

Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 16. maí síðastliðinn. Ný stjórn félagsins var kjörin, en Almar Grímsson sem verið hefur forseti Þjóðræknisfélagsins frá árinu 2003 gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr forseti Þjóðræknisfélagsins var kjörinn Halldór Árnason, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins. LESA MEIRA

Fráfarandi forseti ÞFÍ Almar Grímsson og nýrkjörinn forseti Halldór Árnason

************

FRUMBYGGJAR OG ÍSLENSKIR LANDNEMAR: FYRIRLESTRAR

Íslenskt-kanadískt barn klætt í föt frumbyggja.

Vísindamennirnir dr. Laurie Bertram frá háskólanum í Toronto og prófessor Lorena Fountaine frá háskólanum í Winnipeg helt fyrirlestra í maímánuði í Reykjavík.

*******

Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 16. maí síðastliðinn. Ný stjórn félagsins var kjörin, en Almar Grímsson sem verið hefur forseti Þjóðræknisfélagsins frá árinu 2003 gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr forseti Þjóðræknisfélagsins var kjörinn Halldór Árnason, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins.

Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 16. maí síðastliðinn. Fundinum, sem var vel sóttur, stýrði Svavar Gestsson, fv. ráðherra og sendiherra af mikilli röggsemi. Almar Grímsson gerði grein fyrir störfum stjórnar og Þorvaldur Guðlaugsson skýrði reikninga félagsins.

Ný stjórn félagsins var kjörin, en Almar Grímsson sem verið hefur forseti Þjóðræknisfélagsins frá árinu 2003 gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en skv. lögum félagsins situr hann áfram í stjórninni sem fráfarandi formaður. Nýr forseti Þjóðræknisfélagsins var kjörinn Halldór Árnason, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins og með honum í stjórn eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, Guðríður Sigurðardóttir, Helgi Ágústsson, Svavar Gestsson, Þorvarður Guðlaugsson og Þóra Hrönn Njálsdóttir. Varamenní stjórn eru þau Guðrún Jónsdóttir, Kent Lárus Björnsson og Rögnvaldur Guðmundsson.

Stjórnarmenn frá Norður Ameríku eru Eric Stefanson frá Kanada og Pam Olafson Furstenau frá Bandaríkjunum.

HÉR má lesa skýrslu stjórnar 2010-2011.

Almari Grímssyni fráfarandi forseta ÞFÍ og konu hans Önnu Björk Guðbjörnsdóttur voru færðar hugheilar þakkir fyrir ómetanleg störf á liðnum árum í þágu Þjóðræknisfélagsins en starfsemi félagsins hefur efst gríðarlega undir forystu Almars. 

Verkefni nýrrar stjórnar eru margvísleg og verða þau til frekari umfjöllunar á fyrsta stjórnarfundi sem haldinn verður 20. maí næstkomandi. Á þeim fundi munu stjórnarmenn jafnframt skipta á milli sín verkum. Framkvæmdastjóri Þjóðræknisfélagsins er sem fyrr Ásta Sól Kristjánsdóttir sem jafnframt er verkefnisstjóri Snorraverkefnanna.

Svavar Gestsson, fv. ráðherra og sendiherra stýrði aðalfundi ÞFÍ

Hluti þátttakenda á aðalfundi ÞFÍ í Þjóðmenningarhúsinu.

***************

Frá Þjóðræknisfélagi Íslendinga í Vesturheimi - INL of North America

     Almar Grímsson kjörinn heiðursfélagi í

Þjóðræknisfélagi Íslendinga í Vesturheimi INL of North America

*********

Finnbogi Guðmundsson látinn

Heiðursfélagi ÞFÍ, dr. Finnbogi Guðmundsson

er látinn 87 ára að aldri.

(Nánar)

 

Kynnisferð ÞFÍ til Norðurlands 14. – 18.2.2011

Frá fundinum í Amtsbókasafninu

 

Almar fyrir framan snjókarlinn

mikla á ráðhústorgi 

(nánar)

Stjórn ÞFÍ 2011

 

 

Kynningarfundur FÍ , Vesturfarasetursins og Vesturheims í Amtsbókasafninu á Akureyri, Þriðjudaginn 15. febrúar kl. 17:00.  
Lesa nánar

Þjóðræknisþing föstudaginn  17. september 2010

Góðra vina fundur: bræðurnir Kris og Eric Stefanson með Steinþóri Guðbjartssyni.

Mynd eftir Kristinn Ingvarsson    

 

Glæsilegar konur Anna Björk Íslandi – Pam Olafson Furstenau  Bandaríkjunum

Gail Einarson Mccleery Kanada

Steinþór Guðbjartsson heiðraður

  Smellið hér til að skoða fleiri myndir

 

*****************

Ný bók Davids Gislason

„The Fifth Dimension“

Út er komin bók eftir heiðursfélaga ÞFÍ David Gislason.

Bókin er gefin út af útgáfufélaginu KIND sem stofnað var af íslenskudeild háskólans í Manitoba.

Prentsmiðjan Oddi sá um umbrot og prentun.

************

Snorri Plus 2010 við Faxa í Biskupstungum

Áttundi hópur Snorri Plus var hér á landi frá 19. ágúst til 1. sept. Þetta var 10 manna hópur og að vanda tóku Snorrarnir þátt í Reykjavíkur maraþoni. Eftir fræðslu og starfsheimsóknir var farið til vestur og norður um land og dvölinni lauk í Hafnarfirði þar sem útskrift var 31. ágúst.  Að vanda var efnt til samkomu þar sem ættingjum Snorrana var boðið. Þar hittust margir í fyrsta sinn og oftar en ekki var fólki áður ekki kunnugt um skyldleikann. Þau sorglegu tíðindi bárust meðan á dvöl þeirra stóð að eiginmaður þátttakandans Ferne Gudnason hefði látist. ÞFÍ og Snorraverkefnið senda öllum ættingjum Ferne innilegar samúðarkveðjur.

**********

Fyrirlestur þriðjudaginn 17. Ágúst   -  Lecture Tuesday 17 August

Fred E. Woods

 

*****************

 

Snorri West Reunion

Almar, Ásta Sól, Wanda, Ernest og Alexía

Snorri West

Snorri 2010

**************

 

 

Íslandsheimsókn Christinu Sunley

Höfundar skáldsögunnar Freyjuginningar

 

Mánudaginn 31. maí kl. 16:30 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.

********

Sr. Bragi Friðriksson látinn

Heiðursfélagi félags okkar, sr. Bragi Friðriksson lést í fyrradag fimmtudaginn 27. maí. Hann varð 83 ára.

 

Sr. Bragi fæddist 15. mars 1927 á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1949 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1953. Sama ár var Bragi kallaður til prestsþjónustu í Kanada og vígðist hann það ár. Hann var framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur frá 1957 til 1964 og var á sama árabili formaður Æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar. Árið 1966 tók Bragi við Garðaprestakalli og árið 1977 var hann skipaður prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi. Árið 1997 hætti hann preststarfi.

 

Bragi var kjörinn heiðursfélagi í ÞFÍ á aðalfundi 2008. Stjórn ÞFÍ hfeur sent eftirlifandi eiginkonu sr. Braga Katrínu Eyjólfsdóttur og börnum þeirra samúðarkveðju.

************

 

Þing INL of North America

í Toronto 22. – 25. apríl s.l.

Almar og Jónas Þór með sendiherrahjónunum Sigríði Önnu Þórðardóttur og Jóni Þorsteinssyni

 

Ársþing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vestur-Heimi (INL of North America) var haldið

dagana 22. – 25.. apríl s.l. Dagskrá var mjög fjölbreytt og auk hefðbundinna fyrlestra um

sögu, tungumál og ættfræði var pallborðs-umræða um efnahagsástandið á Íslandi og um

orkumál. Þar fluttu ávörp Oskar Sigvaldason verkfræðingur og Friðrik Jónsson en hann er

frumkvöðull um nýtingu CO2 til framleiðslu eldsneytis. Jónas Þór flutti ítarlegt erindi um

landnám íslendinga á Washingtoneyju. Almar Grímsson formaður formaður ÞFÍ flutti

ásamt Wöndu Anderson erindi um Snorraverkefnin og auk þess sögðu 4 Snorrar frá reynslu sinni af

verkefninu. Alls voru um 25 þátttakendur úr bæði Snorra og Snorra Plus mættir og jafnframt 5 af þátttakendum sumarsins 2010 Í þinglok flutti hinn þekkti tískuhönnuður Linda Lundström

sem er af íslenskum og sænskum ættum bráðskemmtilega frásögn og hugvekju um lífshlaup

sitt og tengsl sín við uppruna sinn og við frumbyggjana á æskustöðvum sínum.

Auk Almars sótti Kent Larus Bjornsson stjórnarmaður í ÞFÍ þingið. Þá voru nokkrir aðrir

þátttakendur frá Íslandi m.a. Robert Jack sem kynnti áform um ferðaþjónustu á Geitafelli á Vatnsnesi.

Gail Einarson Mccleary var kjörin forseti INLog tekur hún við af Gerri McDonald.

 

 

Skipuleggjendur þingsins Gail Einarson og Kara Schuster

 

 

Linda Lundström og Bryan Eyolfson forseti Torontoklúbbsins

 

Jane McReynolds og Brad Hirst æskulýðsleiðtogar INL

Smellið hér til að skoða fleira myndir af Þinginu

eftir Kent Lárus Björnsson

********

Neil Ófeigur Bardal

Myndir .úr minningarathöfn - memorial service

http://vefir.mh.is/kentb/service.wmv

Myndir .úr sýnt á minningarathöfni

http://vefir.mh.is/kentb/neil.wmv

 

 

Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir

Baggalútur

    Smellið hér til að skoða fleiri myndir

                                                                  *******************

Þjóðræknisfélag Íslendinga 70 ára

Nokkrir hugsjónamenn komu saman til fundar í húsi Eimskipafélags Íslands 1. desember 1939 og tóku ákvörðun um að stofna félag til að efla samstarf milli íslenskra landnema í Vesturheimi við gamla landið Ísland. Þá voru liðin 20 ár frá því að félagið var stofnað í Winnipeg, Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi, sem nú gengur undir nafninu The Icelandic National League.

Því miður eru fáar heimildir um aðdraganda stofnunar Þjóðræknisfélag Íslendinga (ÞFÍ). Flest gögn félagsins frá þeim tíma hafa ekki fundist. Þó er ljóst að samstarf og samvinna við landnemana vestra hófst með einum eða öðrum hætti mun fyrr en 1939.

Tímasetning stofnunar ÞFÍ er athyglisverð. Síðari heimstyrjöldin nýhafin og samgöngur og öll samskipti mjög erfið. Eftir stríðslok urðu hins vegar alger straumhvörf. Reglubundnar flugsamgöngur hófust og í kjölfarið voru skipulagðar á næstu áratugum fjölmargar hópferðir vestur og að vestan.

ÞFÍ átti þannig blómaskeið en starfsemi þessi dvínaði mjög um nokkurra ára skeið. Árið 1997 hafði þáverandi ríkisstjórn forgöngu um að endurvekja ÞFÍ og var það gert með formlegum hætti á degi Leifs Eiríkssonar 9. október 1997.

Fljótlega eftir það var farið að huga að ungmennaverkefni sem nefnt var Snorra-verkefnið. Fyrsti hópurinn til Íslands 1999. og er Snorraverkefnið annað af meginstoðum starfs félagsins. Hin er skipulagning ferða á slóðir íslenskra landnema og einnig ferðir afkomenda þeirra hingað til lands. Vonir standa til að starf félagsins haldi áfram að vaxa og dafna.

Almar Grímsson

 

Smella á mynd til að skoða grein.

 

 

 

 

                                                                      

******************

 

Heritage Tour to Iceland 2010

******************

      

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snorri 2009

******************

 

 

 

 

***