Vesturför Fríkirkjukór júní 2007
Free Church of Hafnarfjörður trip to North America 2007
Fararstjórn: Almar Grímsson og Kent Lárus Björnsson
11.júní Mánudagur: 16:35. Brottför frá Keflavík með FI657. Lent um kl. 1800. John Magnusson ræðismaður tekur á móti hópnum. Útdeilt verður samlokum og síðan haldið til gistingar á Amerisuites.
Monday, Arrive in Minneapolis about 6 pm. Honoray Consul, John Magnusson meets and greets the group. Stay at Amerisuites, Mall of America.
12.júní Þriðjudagur: 0800: Frá Minneapolis verður ekið til Duluth (2.5 klst) .
Duluth;
Miklavatn í baksýn
Skoðunarferð um borgina með John Bergson. Hádegisverður á Redwoods, veitingahús í Proctor (útborg Duluth). Að loknum málsverði verður ekið til Itasca (3,5 tímar) en þar er m.a. að finna upptök Mississippi árinnar. Kvöldverður snæddur í garðinum. Ekið á hótel að honum loknum.. Gisting Northern Inn í Bemidji.
Tuesday, Departure 8:00. Short tour of Duluth with John Bergson, see a few Icelandic sites. Lunch at Redwoods in Proctor (suburb of Duluth) then travel west to Itasca State Park, explore the Mississippi Headwaters have supper before ending in Bemidji staying at Northern Inn.
Nothern Inn Bemidji MN 218 444 9500
13.júní Miðvikudagur 0900: Frá Bemidji verður ekið til Grand Forks í Norður Dakota og áfram til Mountain (3,5 klst.). Þar verður snæddur hádegisverður á Byrons Bar og að honum loknum skoðum við Víkurkirkju, elsta íslensku kirkjuna í Vesturheimi. Þá verður heimsótt dvalarheimilið Borg og sungið fyrir vistmenn. Þaðan farið í Gula Húsið þar sem Björn Olgeirson býr en það reisti afi hans skömmu eftir aldamótin 1900.
Farið verður að minnisvarða Káinns sem stendur þar sem áður stóð Thingvallakirkja. Hún brann fyrir nokkrum árum og um árabil hefur mikil fjársöfnun átt sér stað til að standa straum af kostnaði við minnisvarða sem afhjúpaður verður í ágúst næstkomandi. Frá Thingvalla verður farið til Gardar en svo nefndi Stephan G. Stephansson sveit þessa á sínum tíma í höfuðið á Garðari Svavarssyni. Farið verður á landnámsjörð Stephans G. í Garðar en þar var reistur minnisvarði um skáldið fyrir fáeinum árum.
Skoðunarferðinni lýkur í Icelandic State Park þar sem við kveðjum leiðsögumann okkar Magnus Olafson heiðursfélaga í ÞFÍ. Þaðan verður haldið yfir landamærin og áfram til Winnipeg (2,5 klst.).Gist á Radisson Hotel Winnipeg, MB í miðborgWinnipeg næstu tvær nætur.
Wednesday, Departure 9:00. From Bemidji we tarvel to Grand Forks North Dakota, stop for lunch before traveling to the Icelandic Settlement of North Dakota, visiting Garðar, Mountain and Icelandic State Park. Also included is the site of the former Thingvalla Church, memorials to KN Juliusson and Stephan G. Stephansson. Short concert abd coffee at Borg Home. Then cross the border into Canada and travel to Winnipeg. Stay Radisson Hotel Winnipeg, MB for 2 nights.
14.júní Fimmtudagur: Frídagur í Winnipeg. Tækifæri gefst til að skoða höfuðból Íslendinga í Vesturheimi á eigin vegum. Fara í Forks, skoða Manitoba Museum eða rölta um Assiniboine Park. Kent verður í anddyri hótelsins milli kl. 9 og 11 og veitir góðar ábendingar.
Hótelið er í miðbænum og auðvelta að fara þaðan á alla áðurnefnda staði. Tilvalinn verslunardagur, t.d. kíkja í Polo Park verslunarmiðstöðina.
Thursday, Free day in Winnipeg
15.júní Föstudagur 0900: Haldið norður til ,,Nýja Íslands’. Joel Fridfinnson, ungur maður af íslenskum ættum, verður leiðsögumaður okkar og greinir frá sögu landnáms á þessu svæði. Við ökum um Gimli til Arnes, Hnausa og Riverton og áfram til Mikleyjar (Hecla Island). Hádegisverður þar. Ökum síðan á Misty Lake Lodge við Gimli en þar gistum við næstu 2 nætur. Eftir fataskipti ökum við til Arborg og lítum við hjá Rosalind og Einar Vigfusson á Drangey. Þá verður haldið í í lútersku kirkjuna í Arborg þar sem við fáum léttan málsverð um kl. 17:30 og svo kl. 19:30 verða tónleikar kórsins í kirkjunni. David Gislason heiðursfélagi í ÞFÍ hefur veg og vanda af undirbúningi.
Friday, Depart 9:00. Travel north to New Iceland, visiting Gimli, Arnes, Riverton, Arborg and Hecla Island. Stay next 2 nights at Misty Lake Lodge, just outside of Gimli. Concert in the evening in Arborg or Riverton.
16.júní Laugardagur: Frjáls dagur í Gimli með ýmsum atburðum. Kvennahlaup verður í fyrsta sinn á Gimli og konurnar í hópi okkar eru velkomnar til þátttöku. Bæjarstjórinn Tammy Axelsson býður í kaffisopa og tækifæri gefst til að skoða New Iceland Heritage Museum. Safnið er í sama húsi og Betel dvalarheimili aldraðra og þar munum við líta inn og taka lagið. Stefan J. Stefanson heiðursfélagi í ÞFÍ býr á Betel Waterfront og mun segja okkur frá reynslu sinni á kjarnyrtri íslensku.
Saturday, Exciting programs all day in Gimli. Kvennhlaup, Women´s Run at 9:30, reception with Tammy Axelsson Mayor, coffee and song at Betel and much more.
17.júní Sunnudagur 1030: Þjóðhátíðardagur í Winnipeg. Ekið til Winnipeg og skráð inn (tvær nætur) á Delta Hotelí hjarta borgarinnar.
Kórinn mun syngja nokkur lög á tröppum þinghússins um kl. 13:15 og þaðan er gengið spölkorn að styttu Jóns Sigurðssoanr þar sem hefðbundin athöfn fer fram. Hún hefst með því að kórinn syngur þjóðsöngva Íslands og Kanada. Síðan verða ávörp og stendur athöfnin í 35-45 mín.. Kl. 15:30 verða svo tónleikar kórsins í Winnipeg Art Gallery sem er rétt hjá þinghúsinu og Delta hóteli.
Um kvöldið fögnum við þjóðhátíð og góðum degi með sameiginlegum kvöldverði í skemmtisiglingu á ánum. Delta Winnipeg, 350 St.Mary Ave. S.204-942-0551
Sunday, Depart 10:00, travel to Winnipeg and check in to Delta Hotel for the next 2 nights. Take part in Iceland´s Independence Day celebrations at the Jon Sigurdsson Statue in front of the Legislature. Concert in the evening at the Winnipeg Art Gallery.
Delta Winnipeg, 350 St.Mary Ave. S.204-942-0551
18.júní Mánudagur: Frí til hádegis. Boðið upp á skoðunarferð um borgina síðdegis með leiðsögn Neil Bardal heiðursfélaga ÞFÍ og frv. Aðalræðismanns. Hann kann frá mörgu að segja og fer með okkur í heimsókn á hið merka safn íslenskudeildarinnar við Manitobaháskóla. Þar ræður ríkjum hafnfirðingurinn Birna.Bjarnadóttir prófessor. Höfð verður viðkoma á ritstjórnarskrifstofu Lögbergs Heimskringlu og við endum svo í kaffisopa á Betelstað og tökum lagið fyrir eldri borgarana..
Monday, Nothing planned for the morning. After lunch visit Betelstadur, city tour optional, shopping.
19.júní Þriðjudagur 0900: Ekið til Glenboro/Cypress River og snæddur hádegisverður í Fríkirkjunni í Baldur sem nú heitir Cafe Bru. Við heyrum sögu kirkjunnar og Anne Gudnason fer síðan með hópnum kirkjuna við Grund og segir sögu landnáms íslendinga á þessu svæði. Síðan verður haldið áfram til alþjóða friðargarðsins International Peace Garden og yfir landamærin þar. til Minot í Norður Dakota. Ekið verður fram hjá íslenska landnáminu við Mouse River og í Upham. Gist á International Inn Minot, ND
Tuesday, Depart 9:00, travel to Glenboro, visit the church at Grund and Baldur. Lunch at Baldur, then visit the International Peace Gardens and cross the border and travel to Minot, North Dakota. Learn about the Mouse River Settlement. Stay at the International Inn.International Inn Minot, ND
20.júní Miðvikudagur 0900: Skoðaður Norræni garðurinn í Minot og George Freeman mun fræða okkur um íslendingabyggðirnar á svæðinu. Pamela Alme Davy.kynnir hina árlegu Höstfest sem laðar til sín árlega í október um 50-60 þúsund manns til að hlýða á stjórstjörnur á sviði dægur- og sveitatónlistar Að loknum hádegisverði er ekið til Grand Forks og gist í eina nótt á Roadking Inn. Roadking Inn, 3300th Ave. South, sími: 701-746-1391
Wednesday, Depart 9:00. Tour the Nordic Park in Minot and learn about the city and Hostfest. After lunch travel to Grand Forks and stay at Roadking Inn, 3300th Ave. South, sími: 701-746-1391
21. júní Fimmtudagur 0900: Farið á Runestone Museum í Alexandria. Þar er merkur og umdeildur rúnasteinn sem greinir frá komu norrænna manna á þetta svæði á 14. öld. Að loknum hádegisverði er ekið til Minneapolis og verður komið við á flugvelli fyrir þá sem fara heim með flugi þann dag. Síðan ekið á Amerisuites.og gist þar.
Thursday Depart 9:00, visit the Runestone Museum in Alexandria, after lunch travel to Minneapolis and stay at the Amerisuites, Mall of America.
22.júní Föstudagur. Heimferðardagur.Tækifæri gefst til að fara í miðbæinn eða í Mall of America. Geyma má farangurinn á hótelinu og brottför þaðan er um kl. 16:30 eða samkvæmt nánari upplýsingum.
Brottför FI656 kl. 19:20 og áætluð lending í Keflavík 06:20 að morgni laugardags 23. júní 2007.
Friday, Travel back to Iceland late afternoon.