Lög 
Þjóðræknisfélags Íslendinga

 


Forsíða
Ferðalög 
Lög
Saga
Stjórn
Eldri fréttir
Þjóðræknisþing
Tenglar
Fréttabréf
Snorraverkefnið
Snorri West 
Skráning í félagið
 
ENGLISH

 

1. gr.

Félagið heitir Þjóðræknisfélag Íslendinga. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

Félagar í Þjóðræknisfélagi Íslendinga geta orðið þeir einstaklingar, félög eða fyrirtæki, sem vilja vinna að markmiðum félagsins.

Heiðursfélagar geta þeir orðið sem unnið hafa sérstakt starf við að styrkja samband og samstarf afkomenda íslenskra landnema í vesturheimi við Ísland. Kjöri heiðursfélaga er lýst á aðalfundi.

2. gr.

Markmið félagsins er að efla samhygð og samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, og tengsl við fólk af íslenskum ættum utan Íslands.  Félagið beitir sér fyrir eflingu samskipta við Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi samkvæmt sérstökum samstarfssamningi.

Félagið hefur náin samskipti við þjóðræknisfélögin og önnur samtök Íslendinga vestanhafs.  Það stuðlar að gagnkvæmum menningarviðburðum, miðlar upplýsingum, kemur á heimsóknum, svarar fyrirspurnum frá fólki vestanhafs og annast milligöngu um að efla tengsl þess við aðila á Íslandi.  Þjóðræknisfélagið leitast við að vekja skilning íslenskra stofnana og fyrirtækja á mikilvægi náins sambands við Íslendingabyggðir vestanhafs.

Forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga og forseti  Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi semja áætlun til tveggja ára um þessi samskipti og leggja fyrir félagsstjórnirnar til samþykktar.

 3. gr.

Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok maí ár hvert.  Hann skal boðaður með bréfi eða öðrum tryggilegum hætti með að minnsta kosti 10 daga fyrirvara og telst löglegur sé rétt til hans boðað.

Dagskrá hans skal vera þessi:

a.       Fundarsetning og kjörinn fundarstjóri og fundarritari.

b.       Skýrsla félagsstjórnar.

c.       Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.

d.      Lagabreytingar.

e.       Kjörin stjórn, varastjórn og endurskoðendur.

f.       Önnur mál.

Tillögur um breytingar á lögum félagsins skulu lagðar fram á stjórnarfundi a.m.k. þrem vikum fyrir aðalfund og sendar félagsmönnum til kynningar með aðalfundarboði.

Til þess að lagabreytingar öðlist gildi þurfa þær að hljóta 2/3 greiddra atkvæða.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir einir, sem skuldlausir eru við félagið.

4. gr.

Félagsstjórn fer með framkvæmd mála milli aðalfunda og skal skipuð sjö aðalmönnum, þremur varamönnum og tveimur fulltrúum afkomenda íslenskra landnema í Vesturheimi.

Forseti félagsins  er kosinn  sérstaklega

Sex meðstjórnendur í aðalstjórn eru kjörnir sameiginlega. Á stjórnarfundi að loknu kjöri skiptir stjórnin með sér  verkum sem lúta að umsjón með bókhaldi og fjárreiðum félagsins; ritun fundargerða; skráningu á félagatali; umsjón með Snorrasjóði og Snorraverkefninu; útgáfu fréttabréfs og ritstjórn vefsíðu; umsjón með söguritun og öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun forseta og stjórnar.

Þrír varamenn í stjórn eru kjörnir sameiginlega. Þeir sitja fundi stjórnar og taka að sér verkefni samkvæmt nánari fyrirmælum forseta.

Fráfarandi forseti á einnig sæti í stjórninni í eitt ár eftir kjör nýs forseta.

Tveir fulltrúar afkomenda íslenskra landnema í Vesturheimi, annar frá Bandaríkjunum og hinn frá Kanada, eru kjörnir sérstaklega til að starfa með stjórninni að höfðu samráði við Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi..

Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss og framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins á Hofsósi sitja fundi stjórnarinnar.

Félagsstjórn er heimilt að ráða starfsfólk ef þurfa þykir.

5. gr.

Kosnir skulu tveir endurskoðendur og einn til vara.

 6. gr.

Reikningsárið er almanaksárið. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi.

7. gr.

Félagsstjórn er heimilt að skipa fjögurra manna framkvæmdaráð. Í því sitja forseti félagsins, auk þriggja annarra úr stjórninni  samkvæmt ákvörðun stjórnarfundar.

 

 8. gr.

Ef þörf krefur er stjórninni heimilt að skipa fulltrúa frá félaginu til setu í stjórnum annarra félaga eða ráðum, á fundum eða þingum, þar sem fjallað er um málefni eða unnið að verkefnum er varða hagsmuni félagsins og/eða önnur áhugamál þess.

9. gr.

Verði félagsslit skal boða til sérstaks fundar um það mál á sama hátt og til aðalfundar. Allar eignir félagsins skulu þá fengnar Menntamálaráðuneytinu til varðveislu. Að 10 árum liðnum getur ráðuneytið varið eignum félagsins í þágu þeirra málefna, sem þykja standa næst markmiðum þessara félagslaga. Verði nýtt félag, sem starfar í anda þessara laga, stofnað innan 10 ára frá félagsslitum, skulu eignir félagsins renna til þess.

 

Með lögum þessum falla úr gildi eldri lög félagsins frá 9. apríl 1947 með áorðnum breytingum.

 

Lög ÞFÍ eru þannig breytt á aðalfundi 6. nóvember 2004, á aðalfundi 3. október 2007 og á aðalfundi 29. september 2010.

 

 

 

INL of Iceland