|
|
||||||||||||||||||
|
|
Saga ÞFÍ
|
|||||||||||||||||
|
Þjóðræknisfélag Íslendinga var formlega stofnað 1. desember 1939. Óformlegt félag hafði verið starfandi að meira eða minna leyti á þriðja og fjórða áratugnum. Tilgangur félagsins var frá byrjun að stofna til og rækta menningarleg og félagsleg tengsl við Kanadamenn af íslenskum ættum og systurfélagið, INL Kanada. ÞFÍ lifði því hvort tveggja góða tíma og slæma, en upp úr 1980 fór starfsemi félagsins dvínandi. Stjórn ÞFÍ (INL-Iceland) ákvað því að að fara þess á leit við utanríkisráðuneytið að það aðstoðaði við að endurvekja félagið. Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra, leist strax vel á hugmyndina og skipaði bráðabirgðastjórn til tveggja ára. Samkomulagið á milli utanríkisráðuneytisins og bráðabirgðastjórnarinnar var undirritað 9. október 1997 á degi Leifs Eiríkssonar í Bandaríkjunum. Þjóðræknisfélagið var með aðstöðu hjá Norræna félaginu milli áranna 1997 og 2000, en flutti til utanríkisráðuneytisins um tíma. Þjóðræknisfélagið flutti aftur til Norræna félagsins í janúar 2006, þaðan sem Snorraverkefnið er einnig rekið. Framkvæmdastjóri er Ásta Sól Kristjánsdóttir.
|
|||||||||||||||||
| INL of Iceland | ||||||||||||||||||