Vesturheimur sf     Thortravels

www.vesturheimur.com

(354) 861-1046

jonas.thor1@gmail.com

Skrifstofutími:

9:00-16:00

 

 

Félagið stofnað í ágústbyrjun 2006 og er tilgangurinn með stofnun þess að efla tengsl Íslands og Íslendinga við afkomendur íslenskra vesturfara í Norður Ameríku. Skipulagðar verða ferðir Íslendinga vestur um haf til Bandaríkjanna og Kanada á staði sem á einn eða annan hátt tengjast sögu vesturfaranna. Ennfremur verða skipulagðar ferðir Vestur Íslendinga til Íslands. Stuðlað verður að útgáfu efnis í hvers lags mynd er varðar sögu Íslendinga í Vesturheimi. Loks verður áhersla lögð á kynningu íslenskrar menningar vestan hafs. Skoðum þetta nánar:

 

 

 

Ferðir til Vesturheims 2010

Frá fyrri ÞFÍ ferðum

Fróðleikur

English

Þjóðræknisfélag Íslendinga

jonas.thor1@gmail.com

Júni 2010 Heritage tour til Íslands

Tours to Iceland from Manitoba click here to see ad.     Click here to see itinerary

 

VESTURSTRÖND – SUMAR 2010

6. – 18. JÚLÍ, 2010

 

Winnipeg -Klettafjöll – sumar 2010

7.júlí – 17.júlí 

7.ágúst – 18.ágúst

 

Winnipeg Beint Flug

Vikuferðir: -Flug, gisting og skoðunarferðir um Íslendingabyggðir.

Kanadaferðir Sumar 2010

 

Íslendingadagshátíð á Gimli í ágústbyrjun:

24.júlí til 4.ágúst

28.júlí til 4.ágúst

 

Kanadaferðir Sumar 2010 FERÐALÝSING

 

GOLF Í KANADA

 

 

KANADAFERÐ – HAUST Í NÝJA SKOTLANDI

 

9. – 16. SEPTEMBER, 2010

 

Júní 2009: Vestur-Íslendingar í heimsókn  Link   

Some 83 North American Icelanders took part in the first Heritage Tour of Iceland organized by Thortravels (Vesturheimur sf) and Geo Travel in Winnipeg. Participants from all corners of North America flew to Iceland on Icelandair flights from Minneapolis and Toronto on June 3rd

This was followed by a tour around the island with stops every day at some significant sites, both historical and scenic.  During the winter, many provided information on their Icelandic background and with the help of Mr.Halfdan Helgason, an expert genealogist, and contributions from others such as Nelson Gerrard, living relatives in Iceland were discovered as well as the original farmstead from where forefathers left for America. It was rewarding to witness people greet relatives for the first time or see them walk up to a farm to take photos of the birthplace of their ancestors.

Mr.Valgeir Þorvaldsson at the Emigration Centre in Hofsos had prepared a remarkably eventful day which ended with a dinner and a wonderful entertainment unforgettable to all who participated.

Likewise, the Emigration Centre in East Iceland led by Cathy Josephson, had assisted many in not only finding relatives but also provided transportation to remote areas from where ancestors left for North America. A wonderful reception at Vopnafjordur completed a fine day in the north east 

Mr.Brian Johannesson was on the tour and captured events on camera. Click on his 

http://www.winnipegfalcons.com/falcons/iceland2009/index.html  (CTRL + link) 

to see some photos of the many memorable moments.

 

**********

Námsferð starfsmanna FG

22.maí-1.júní,2007

 

Smella til að skoða myndir af ferð, Nýja Ísland og Winnipeg

Smella til að skoða myndir af ferð, Norður Dakota

Smella til að skoða myndir af ferð, Itasca State Park, Duluth og Minneapolis

Myndir Guðmundur Páll Ásgeirsson

 

 

 

Ferðir til Vesturheims.

 

Þjóðræknisfélagið hefur um árabil skipulagt ferðir vestur um haf og er ætlunin að því verði haldið áfram og mun Vesturheimur sf. annast þessar ferðir. Þær verða áfram í nafni ÞFÍ . Ferðirnar sem um ræðir eru allar eins hugsaðar. Meginmarkmið hverrar ferðar er að hitta fólk af íslenskum ættum og er ýmislegt gert til að stuðla að nánum kynnum. Ferðirnar eru undirbúnar með góðum fyrirvara og gefst þátttakendum tækifæri til að leita ættingja á þeim slóðum sem farið verður um áður en lagt er af stað. Nánast undantekningarlaust hefur einhverjum lánast að finna ættingja í hverri ferð og hafa þeir iðulega kallað til frændur og frænkur sem oft ferðast langan veg til að hitta ættingjana frá Íslandi. – Deildir Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi svo og önnur félög Íslendinga þar taka virkan þátt í undirbúningi hverrar ferðar og eru einatt hafðar með í ráðum.

Áhersla er lögð á fræðslu í ferðum ÞFÍ. Sögu Íslendinga í Vesturheimi er gerð rækileg skil svo og öðru er varpar ljósi á líf vesturfaranna og afkomenda þeirra.

 

Ljóðalestur við gröf Káins

 

 

 

Ferðir til Íslands.

 

Fjölmargir afkomendur vesturfaranna hafa komið til Íslands í þeim tilgangi að leita upprunans; finna ættarsetrið og skyldmenni. Oftast hafa þeir ferðast til Íslands á eigin vegum og reynt, þegar hingað er komið, að finna ættingja. Tíminn er naumur svo oftar en ekki snúa ferðalangar heim án þess að tilgangi ferðarinnar hafi í öllum atriðum verið náð. ÞFÍ og Vesturfarasetrið vinna náið saman og geta bætt ástandið í samvinnu við deildir Þjóðræknisfélagsins vestra. Áhugasamir um ferðir til Íslands ættu að hafa samband við sína deild sem síðan kemur upplýsingum áleiðis hingað. Við getum reynt að finna ættingja hér heima og það eru meiri líkur á að það takist ef upplýsingar berast tímanlega. Vesturheimur sf.  skipuleggur síðan ferðir hingað og um landið. Ferðir afkomenda  

vesturfaranna eru annars eðlis en hefðbundin skoðunarferð útlendinga um Íslands. Vestur Íslendingurinn vill fyrst og fremst fara um þær sýslur, þau héruð og sveitir  

sem tengjast honum á einn eða annan hátt. Og vitaskuld dvelja meðal ættingja og vina. 

 

 

Hofsós

 

 

 

Rannsóknir og skrif.

 

Meðfram ferðaþjónustunni er ætlunin að rannsóknir verði áfram gerðar á sögu Íslendinga í Vesturheimi og um hana skrifað. Vesturheimur sf. mun halda úti vefsíðu þar sem í framtíðinni er ætlunin að hafa fróðleik ýmis konar í máli og myndum. Þá er það hugmyndin að landnámssaga Íslendinga í Vesturheimi verði rituð og henni komið á bók.