Kæru félagar
Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga verður haldið sunnudaginn 7. september n.k. á Hótel Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík frá kl. 14.00 – 16.00.
Þjóðræknisfélagið er nú orðið 86 ára, var stofnað 1. desember 1939. Markmið þess er að efla
samskipti og samvinnu fólks hér á landi og í Kanada og Bandaríkjum Norður Ameríku sem
tengist Íslandi. Fyrstu helgina í ágúst var haldinn veglegur Íslendingadagur í Gimli að venju
og þar var forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir heiðursgestur.
Við í stjórn ÞFÍ vonumst til að sjá ykkur sem flest á þinginu og hvetjum við ykkur til að taka
með ykkur gesti. Kaffiveitingar í boði félagsins.
Öll eru velkomin á þingið.
Dagskráin er hér fyrir neðan.
Með hlýjum kveðjum,
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga verður haldið á Icelandair Hotel Reykjavík Natura sunnudaginn 7. september 2025 kl. 14.00
Dagskrá:
Setning.
Kl. 14.00 Guðrún Ágústsdóttir, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga
Ávörp
Kl. 14.10 Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands
Kl. 14.15 Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi
Kl. 14.20 Erin Sawyer, starfandi sendiherrra Bandaríkjanna á Íslandi
Kl. 14.25 Mark Petursson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi
Kl. 14.30 Douglas Hanson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Bandaríkjunum
Erindi
Kl. 14.35 The Icelandic Emigration ports and our Shared Heritage: Honoring the Past,
Uniting the Present. Sunna Furstenau, founder of Icelandic Roots
Kl.14.50 Kaffi og meðlæti í boði Þjóðræknisfélagsins
Kl. 15.20 Snorri Helgason tónlistarmaður
Kl. 15.35 Júlíana Jónsdóttir og íslenskar skáldkonur í Vesturheimi.
Helga Kress, prófessor emeritus
Kl. 15.50 Snorri West Alumni Intern. Karítas Hrund Pálsdóttir.
Kl. 16.00 Þingslit
Þingstjórar: Hjálmar W. Hannesson fyrrv.sendiherra og Hulda Karen Daníelsdóttir fyrrv. forseti ÞFÍ