Kæru félagar

Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga verður haldið sunnudaginn 7. september n.k. á Hótel Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík frá kl. 14.00 – 16.00.

Þjóðræknisfélagið er nú orðið 86 ára, var stofnað 1. desember 1939. Markmið þess er að efla

samskipti og samvinnu fólks hér á landi og í Kanada og Bandaríkjum Norður Ameríku sem

tengist Íslandi.  Fyrstu helgina í ágúst var haldinn veglegur Íslendingadagur í Gimli að venju

og þar var forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir heiðursgestur.

Við í stjórn ÞFÍ vonumst til að sjá ykkur sem flest á þinginu og hvetjum við ykkur til að taka

með ykkur gesti.   Kaffiveitingar í boði félagsins.

Öll eru velkomin á þingið.

Dagskráin er hér fyrir neðan.

 

Með hlýjum kveðjum,

Guðrún Ágústsdóttir, formaður

Þing Þjóðræknisfélags Íslendinga  verður haldið á Icelandair Hotel Reykjavík Natura sunnudaginn 7. september 2025 kl. 14.00

Dagskrá:

Setning.

Kl. 14.00             Guðrún Ágústsdóttir, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga

Ávörp

Kl. 14.10              Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands

Kl. 14.15              Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi

Kl. 14.20              Erin Sawyer, starfandi sendiherrra Bandaríkjanna á Íslandi

Kl. 14.25              Mark Petursson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi

Kl. 14.30              Douglas Hanson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Bandaríkjunum

Erindi

Kl. 14.35              The Icelandic Emigration ports and our Shared Heritage: Honoring the Past,

                                    Uniting the Present. Sunna Furstenau, founder of Icelandic Roots

Kl.14.50               Kaffi og meðlæti í boði Þjóðræknisfélagsins

Kl. 15.20              Snorri Helgason tónlistarmaður

Kl. 15.35              Júlíana Jónsdóttir og íslenskar skáldkonur í Vesturheimi.

                                    Helga Kress, prófessor emeritus

Kl. 15.50              Snorri West Alumni Intern. Karítas Hrund Pálsdóttir.

Kl. 16.00              Þingslit

Þingstjórar:       Hjálmar W. Hannesson fyrrv.sendiherra og Hulda Karen Daníelsdóttir fyrrv. forseti ÞFÍ